Ársfundur norræna endurskoðendasambandsins

Ársfundur norræna endurskoðendasambandsins NRF var haldinn í Reykjavík 21. – 22. ágúst. Unnar Friðrik Pálsson, framkvæmdastjóri FLE, Elín Hanna Pétursdóttir formaður félagsins og Sara Henný H. Arnbjörnsdóttir varaformaður sóttu fundinn fyrir hönd FLE. Á aðalfundi samtakanna, sem haldinn var samhliða ársfundinum, var Elín Hanna kjörin forseti NRF til næstu tveggja ára.

Fundarmenn voru yfir 20 talsins því ásamt framkvæmdastjórum og formönnum FLE og systurfélaga á Norðurlöndunum er t.d. framkvæmdastjórum og forsetum alþjóðasamtakanna Accountancy Europe og IFAC jafnan boðið að sækja ársfundi NRF ásamt formönnum IESBA (International Ethics Standards Board for Accountants) og alþjóða staðlaráðsins (IAASB) ásamt fulltrúum NRF í nefndum alþjóðasamtakanna. Að þessu sinni sótti formaður CEAOB (Committee of European Auditing Oversight Bodies) ársfundinn en CEAOB er samstarfsvettvangur opinberra eftirlitsaðila með endurskoðendum. Meðal annarra boðsgesta má nefna Sander Klous frá University of Amsterdam og Marcel Boersma frá A14FinTech.

Yfirskrift ársfundarins var „ Rethinking Relevance: Trust, Identity and Change“ sem þýða mætti sem „Endurmat á mikilvægi: Traust, sjálfsmynd og breytingar“.

Fundurinn hófst á því að Gylfi Magnússon, prófessor við Háskóla Íslands, hélt gott og fróðlegt upphafserindi. Í því fjallaði hann meðal annars um að í heimi sem mótast sífellt meira af tækni og gervigreind stöndum við frammi fyrir „óþekktum óvissuþáttum“ (unknown unknowns). Það er þróun sem við getum ekki séð fyrir að fullu en verðum engu að síður að búa okkur undir að takast á við. Þessi framtíðarsýn endurspeglaðist að hluta til í dagskránni sem á eftir fylgdi en þá voru haldin fjölmörg góð erindi auk pallborðsumræðna. Má hér nefna (ekki tæmandi) að Sander Klous fjallaði um það hversu hratt tækninni (gervigreind) fleygir fram sem undirstrikar að eftir því sem tækniþróunin verður hraðari verður faglegt mat, staðlar sem eru í takt við tímann og gott siðferði enn mikilvægara en áður. Meðal annarra umfjöllunarefna má nefna áhrif breytts eignarhalds á endurskoðunar- og bókhaldsfyrirtækjum á undanförnum árum, þ.e. fjárfestingar einkafjárfstingarfélaga (private equity firms) og siðamál auk þess sem Panos Prodromides fjallaði um mál er varða eftirlit en hann er formaður CEAOB.