40/40 listinn fyrir árið 2026
Ráðgjafarfyrirtækið Góð samskipti hefur birt lista yfir 40 efnilega stjórnendur, 40 ára og yngri, sem spáð er frekari frama í íslensku viðskiptalífi. Listinn er tekinn saman til að lyfta fólki sem hefur staðið sig vel í því vandasama hlutverki að vera stjórnandi en einnig til að gefa vísbendingu um hverjir gætu átt eftir að taka við æðstu stöðum í íslenskum fyrirtækjum á næstu árum.
Við erum gríðarlega stolt og ánægð að sjá tvo löggilta endurskoðendur og félagsmenn FLE á þessum lista, þær Önnu Guðrúnu Gunnlaugsdóttur, yfirverkefnastjóra hjá KPMG og Elínu Eddu Angantýsdóttur, fjármálastjóra Fastus.
Listinn hefur verið tekinn saman annað hvert ár síðan 2018 og hafa löggiltir endurskoðendur einnig átt sæti á listanum áður, þeir Sigurður Rúnar Pálsson (2024), Ásbjörn Guðmundsson (2024), Sveinn Rafn Eiðsson (2022) og Arnar Kristinn Þorkelsson (2020).
