Áformaskjal vegna breytinga á lögum um bókhald (ný heildarlög)

Atvinnuvegaráðuneytið vinnur nú að nýjum heildarlögum um bókhald. Eins og fram kom í tölvupósti til félagsmanna í maí síðastliðnum og fréttabréfi í júní þá á FLE fulltrúa í vinnuhópnum sem er Eiríkur Kristófersson, endurskoðandi hjá PwC. Félagsmenn eru hvattir til að koma ábendingum um það sem betur má fara í lögunum á framfæri við FLE. Við munum svo safna ábendingum saman og yfirfara í samráði við fagnefndir félagsins og fulltrúa okkar í vinnuhópnum. Vinsamlegast sendið ábendingar á upalsson@fle.is.

Á dögunum var áformaskjal um lagasetninguna birt í samráðsgátt, sjá nánar hér. Í gáttinni er að finna umfjöllun um hvaða breytingar stendur til að gera, þ.e. markmiðið með lagasetningunni (ekki frumvarpið sem er í vinnslu og hefur því ekki verið lagt fram). Í áformaskjalinu kemur fram að frumvarpið muni verða kynnt í opnu samráði í samráðsgátt stjórnvalda.

Hvorki í umfjöllunni né áformaskjalinu kemur fram hvort markmiðið sé að frumvarpið verði lagt fram strax á komandi haustþingi. FLE mun fylgjast með framgangi málsins og halda félagsmönnum upplýstum. Álitsnefnd FLE mun senda inn umsögn þegar frumvarpið hefur verð birt í samráðsgátt.

Hér að neðan eru helstu efnisatriði sem finna má í umfjölluninni í samráðsgáttinni og áformaskjalinu.

Lögin færð til nútímahorfs

Í umfjöllun ráðuneytisins segir réttilega að með framförum í tæknimálum hafi umhverfi bókhalds tekið stakkaskiptum frá því lög nr. 145/1994, um bókhald voru skrifuð og jafnframt að ætlunin með nýjum heildarlögum sé í samræmi við það markmið að stuðla að heilbrigðu og samkeppnishæfu viðskiptalífi sem og að tryggja að löggjöf sé skýr og skilvirk. Þannig hafi hafi færsla bókhalds færst frá bókhaldsbókum á pappír inn í hinn rafræna heim. Þar sem lögin voru skrifuð með pappírsbókhald í huga þurfi því að gera breytingar á lögunum þannig að þau endurspegli hvernig bókhald er fært í dag. Því verði um að ræða heildarendurskoðun laganna með áherslu á rafrænt bókhald sem og einföldun fyrir minni félög.

Orðalagsbreytingar, skilgreiningar og hugtök

Í áformaskjalinu segir að lagt sé upp með að leggja fram frumvarp með nýjum heildarlögum um bókhald þar sem rauðum þræði laganna sem byggist á pappírsbókhaldi er breytt í rafrænan og það kalli á orðalagsbreytingar ákvæðanna, ný hugtök og skilgreiningar. Hugtakið frumrit er nefnt sem dæmi.

Varðveisluákvæði

Lagt verður til að geymsla bókhaldsgagna verði ekki bundin við geymslu gagna hérlendis sem endurspeglar pappírshugsunina að möppur með gögnum séu til staðar. Horft verði til þess raunveruleika í dag að bókhald er geymt á rafrænan hátt, oftast í skýjum. Þannig verði breytingin á þann veg að bókhald sé ávallt aðgengilegt án tafar fyrir yfirvöld en ábyrgð á geymslu skuli vera hjá hinum bókhaldsskylda aðila.

Skoðunarmenn

Í umfjöllininni kemur fram að farið verði yfir stöðu skoðunarmanna og að ábendingar hafi borist um að þetta sé falskt öryggi.