FLE auglýsir styrki

Félag löggiltra endurskoðenda – FLE auglýsir til umsóknar styrki frá Námsstyrkja- og rannsóknarsjóði félagsins.

Markmið sjóðsins er að:

  • Styrkja bóklega menntun endurskoðenda með því að veita ýmist styrki til einstaklinga sem stunda framhaldsnám í endurskoðun og reikningsskilum eða styrkja stofnanir sem standa fyrir slíku námi.
  • Veita styrki til eflingar rannsókna á sviði reikningshalds og endurskoðunar í þeim tilgangi að efla faglega umræðu um efnið, viðhalda og auka faglega þekkingu endurskoðenda eða styrkja rannsóknir sem snerta beint hagsmuni FLE eða lögbundið hlutverk þess.

Umsóknarfrestur um náms- eða rannsóknarstyrk á árinu 2017 er til 15. september 2017. Stjórn sjóðsins metur umsóknir og ákvarðar um úthlutun styrkja eigi síðar en 15. nóvember næst komandi. Nálgast má skipulagsskrá sjóðsins, úthlutunarreglur og umsóknarslóð á vefsíðu félagsins. Eins er hægt að sjá hvaða styrkir hafa verið veittir frá 2010.