Hanna Kristín Skaftadóttir lýkur doktorsprófi með stuðningi FLE
Hanna Kristín Skaftadóttir hefur lokið doktorsprófi í gervigreind og sjálfvirknivæðingu ferla við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands. Doktorsritgerð hennar ber heitið AI & Automation in Business: Leading Automation, AI Adoption, Organizational Change, and Interpretable Data-Driven Strategies og fjallar um innleiðingu gervigreindar, sjálfvirknivæðingu ferla og gagnadrifnar aðferðir í viðskiptum og fjármálum.
Rannsóknin var unnin með stuðningi Félags löggiltra endurskoðenda og Háskóla Íslands. Í verkefninu eru skoðuð þrjú meginviðfangsefni: siðferðileg og lagaleg álitaefni tengd gervigreind í fjármálum, mannlegir og stjórnunarlegir þættir í innleiðingu gervigreindar og sjálfvirknivæðingar og aðferðir til að gera flókin gögn og niðurstöður gagnagreiningar skiljanlegri með skýranlegum og notendamiðuðum aðferðum.
Helstu niðurstöður benda til þess að farsæl innleiðing gervigreindar sé hvorki eingöngu tæknilegt verkefni né eingöngu regluvarsla. Hún krefst traustra stjórnarhátta, skilnings á mannlegum þáttum og aðferða sem gera niðurstöður kerfa gagnsæjar, rekjanlegar og gagnlegar fyrir þá sem þurfa að byggja ákvarðanir á þeim. Þetta á sérstaklega vel við í fjármálum, endurskoðun og öðrum greinum þar sem unnið er með viðkvæm gögn, trúnað og faglega ábyrgð.
Hanna Kristín þakkar FLE kærlega fyrir stuðninginn við doktorsverkefnið og vonar að niðurstöður þess geti nýst í umræðu um ábyrga, örugga og hagnýta notkun gervigreindar í íslensku atvinnulífi.
