Löggildingarpróf 2025, frá prófnefnd löggiltra endurskoðenda

Með vísan til laga nr. 94/2019 um endurskoðendur og endurskoðun, er fyrirhugað að halda próf til
löggildingar til endurskoðunarstarfa í október 2025 sem hér segir: 

Próf í endurskoðun og reikningsskilum:
Fyrri hluti þriðjudaginn 14. október.
Seinni hluti fimmtudaginn 16. október.
Prófin hefjast kl. 9 hvorn dag og standa til kl. 16

Próf í skattalögum, félagarétti, kostnaðarbókhaldi
og stjórnendareikningsskilum:
Mánudaginn 20. október.
Prófið hefst kl. 9 og stendur til kl. 14.
Um efnissvið prófanna vísast til 3. gr. reglugerðar
nr. 595/2020 um próf til löggildingar endurskoðunarstarfa.
Próftökugjald er kr. 480.000 fyrir próf í endurskoðun og reikningsskilum og kr. 160.000 fyrir próf
í skattalögum, félagarétti, kostnaðarbókhaldi og stjórnendareikningsskilum. Greiða þarf staðfestingargjald fyrir hvort próf sem er 20% af fjárhæð prófgjalds.

Væntanlegir prófmenn skulu skila umsóknum fyrir föstudaginn 8. ágúst nk. til prófnefndar.
Tilkynningar sendist formanni prófnefndar, Jóni Arnari Baldurs, Urðarbraut 9, 200 Kópavogi eða í tölvupósti á jon.a.baldurs@gmail.com.

Tilkynningu skulu fylgja nafn prófmanns og kennitala, heimilisfang, tölvupóstfang og staðfesting um að fullnægt sé skilyrðum 5. og 7. tl. 1. mgr. 2. gr. laga nr. 94/2019.

Próftakar fá þá senda reikninga fyrirprófgjaldinu og skal allt prófgjaldið vera greitt fyrir 15. september nk.

Prófnefndin mun boða til fundar með prófmönnum fyrir lok ágúst nk.

Reykjavík, 5. júlí 2025.
Prófnefnd löggiltra endurskoðenda