Löggildingarprófin verða 7. og 9. október

Löggildingarpróf verða haldin 7. og 9. október.

Löggildingarpróf verða haldin 7. og 9. október samkvæmt auglýsingu sem birtist í Fréttablaðinu og Morgunblaiðinu 5. júlí 2014. Prófin hefjast kl. 9 hvorn dag og standa til kl. 17.

Væntanlegir prófmenn skulu skila umsóknum fyrir 8. ágúst til formanns prófnefndar, Árna Tómassonar, Hraunbraut 20, 200 Kópavogi. Prófnefndin mun svo boða til fundar með prófmönnum fyrir lok ágústmánaðar. Sjá nánar í auglýsingunni hér að neðan.