Málstofa um hvernig megi laða að og halda í fólk innan endurskoðunarstéttarinnar
Miðvikudaginn 25. júní var haldin málstofa í Háskólanum í Rvík. þar sem Dr. Linda D. Hollebeek, alþjóðlega viðurkenndur sérfræðingur í þátttöku viðskiptavina hélt fyrirlestur sem nefndist; Engaging the Next Generation of Public Accountants: Insights from Customer Engagement Theory en inntak fyrirlestrarins var hvernig megi mæta þeirri áskorun að laða að og halda í nýtt og hæfileikaríkt starfsfólk innan endurskoðunarstéttarinnar. Hér má nálgast glærur Lindu.
Í fyrirlestrinum kynnti Linda hugtakið þátttaka viðskiptavina (e. customer engagement, CE) og helstu fræðilegar undirstöður þess. Því næst voru þessar hugmyndir yfirfærðar á ráðningarstefnu í endurskoðunargeiranum með sérstaka áherslu á kynslóð Z og skoðaðar hvatir hennar til starfsvals, gildi hennar og hvað kveiki helst áhuga fólks af þeirri kynslóð.
Málstofan var vel sótt og góðar umræður í lok fyrirlestrar. Á myndinni eru auk Lindu þeir Stefan Wendt, forseti viðskiptadeildar HR og Valdimar Sigurðsson prófessor við skólann sem lauk fyrr á þessu ári rannsókn fyrir FLE um hvernig megi laða að fólk í stéttina.