Niðurstöður úr löggildingarprófinu
28.11.2017
Félaginu bárust þær gleðilegu fréttir að sex nýir löggiltir endurskoðendur væru væntanlegir í hópinn. Prófin þreyttu að þessu sinni 11 nemar. Eins og vanalega ríkir töluverð spenna þegar von er á niðurstöðum úr löggildingarprófinu og þannig var það líka núna. Jón Arnar Baldurs, prófstjóri gaf okkur upp að eftirfarandi einstaklingar hefðu uppfyllt kröfur í prófinu og fái væntanlega löggildingu fljótlega eftir áramót. Óskum við þeim öllum til hamingju með áfangann.
- Daníel Jón Guðjónsson hjá PwC
- Hrund Hauksdóttir, Deloitte
- Ingibjörg Ester Ármannsdóttir, KPMG
- Ísak Gunnarsson, Ernst & Young
- Oddur Ás Garðarsson, Deloitte
- Steina Dröfn Snorradóttir, Deloitte