Skil atvinnumanna á skattframtölum viðskiptamanna 2026
Ríkisskattstjóri hefur gefið út tilkynningu um skil atvinnumanna á skattframtölum viðskiptamanna 2026. Tilkynninguna má finna hér en eftirfarandi eru lykildagsetningar:
Skilafrestir framtala
Framtölum einstaklinga, hvort heldur er utan atvinnurekstrar eða með atvinnurekstur, skal skilað með jöfnum hætti innan framtalstímabilsins 1. mars til 15. apríl.
Skattframtölum stærri lögaðila skal skilað fyrir 31. maí og með jafnri dreifingu. Til stórra lögaðila teljast þeir sem eru með veltu yfir 1.000 milljónum kr. og eignir yfir 500 milljónum kr.
Skattframtölum minni lögaðila, þ.e. undir framangreindum stærðarmörkum, skal skilað með sem jafnastri dreifingu frá upphafi framtalstímabils 1. febrúar til 21. september, sem er lokaskiladagur í ár og er sá skiladagur endanlegur. Tíminn sem unnt er að skila telur um átta mánuði og ef skil væru alveg með jöfnum hætti bæri að skila um 12,5% af heildarfjöldanum í hverjum mánuði. Því skal áréttað að haldið sé við sem jöfnust skil, þannig að ekki komi til þess að hámark skila í júlí og ágúst fari fram úr 40%. Þá skal tekið fram sérstaklega að uppsöfnuð lokaskil í september skulu ekki fara fram úr 20%, þannig að grípa þurfi til sérstakra ráðstafana.
Fylla þarf út skilalista á heimasíðu Skattsins fyrir 1. apríl: skatturinn.is/skil
Skil á ársreikningum
Í bréfi Skattsins er vakin athygli á mikilvægi þess að staðin séu skil á ársreikningum til ársreikningaskrár með rafrænum hætti og innan lögboðins skilafrests, sbr. 109. gr.laga um ársreikninga. Minnt skal á að að lögboðinn skilafrestur er eigi síðar en mánuði eftir samþykkt ársreiknings og samstæðureiknings, ef við á, þó eigi síðar en átta mánuðum eftir lok reikningsárs, sem er þá 31. ágúst fyrir félög sem eru með almanaksárið sem reikningsár. Fyrir örfélög sem nýta sér heimild til að skila Hnappsreikningi er lokadagur skila 21. september. Það þarf hins vegar að gæta að því að ársreikninga félaga með skráð hlutabréf eða skuldabréf skal senda til ársreikningaskrár þegar eftir samþykki þeirra og eigi síðar en fjórum mánuðum eftir lok reikningsárs. Sama gildir um ársreikninga félaga sem beita alþjóðlegum reikningsskilastöðlum samkvæmt heimild í 92. gr. laga um ársreikninga.
