Upplýsingar um raunverulega eigendur við skil á ársreikningi
Ársreikningskrá vill að gefnu tilefni benda fagaðilum á að gæta þess vel að þær upplýsingar sem skráðar eru við innsendingu ársreiknings séu réttar. Í ljós hefur komið við eftirlit fyrirtækjaskrár með raunverulegum eigendum að verulegur misbrestur er á upplýsingum um hluthafa sem fylgja með ársreikningi og sem skilað hefur verið um raunverulega eigendur félaga beri saman.
Þær breytingar hafa verið gerðar við innsendingu ársreiknings að þegar innslegnar upplýsingar um raunverulega eigendur ber ekki saman við skráðar upplýsingar félagsins er skráningaraðilinn beðinn um að staðfesta hvort hann vilji halda áfram og því ættu allir að geta sannreynt upplýsingar áður en skilað er.
Hægt að ganga úr skugga um hver er skráður raunverulegur eigandi með því að fletta upp viðkomandi félagi á upplýsingavef embættisins, www.skatturinn.is – undir Fyrirtækjaskrá – Raunverulegir eigendur. Við uppflettingu kemur fram hverjir eru skráðir.
