Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) sendir fyrirspurnarbréf vegna áritana ríkisendurskoðanda

Við höfum margoft fjallað um áritanir ríkisendurskoðanda á ársreikninga félaga sem eru í meirihlutaeigu ríkisins og sem falla undir lög um ársreikninga og eru endurskoðunarskyld. Sem kunnugt er þá er ríkisendurskoðandi ekki löggiltur endurskoðandi. Það er því óþarfi að fjalla um forsögu málsins hér en benda má á eftirfarandi fréttir á heimasíðunni.

Áritun ríkisendurskoðanda

Lögfræðiálit vegna áritunar ríkisendurskoðanda

Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) sendi í sumar fyrirspurnarbréf til Atvinnuvegaráðuneytisins þar sem óskað er eftir svörum við nokkrum spurningum ekki síðar en 31. ágúst. FLE óskaði á dögunum eftir því að fyrirspurnarbréfið yrði fært í gagnagrunn ESA og þar með til opinberrar birtingar. ESA varð við þeirri ósk. Hægt er að nálgast fyrirspurnarbréfið hér: Letter

Félagið mun að sjálfsögðu fylgjast með framgangi málsins en slóð á gagnagrunn ESA má finna hér. Í gagnagrunninum er hægt að leita eftir málsnúmeri (Case number). Málsnúmerið er 94144.