Félag kvenna í endurskoðun 20 ára á árinu

FKE var stofnað þann 23. nóvember 2004 og verður því 20 ára næsta vetur. Stjórn félagsins hefur hafið undirbúning að afmælisviðburði fyrir konurnar í félaginu og stefnan er að fara eina nótt á Hótel Geysir í Haukadal. Þar ætla þær að fá fyrirlesara til sín, fræðast um eitthvað spennandi, borða saman um kvöldið og hafa gaman. Að sjálfsögðu eru allar konur sem hafa hlotið löggildingu velkomnar og hvattar til þess að skrá sig á þennan skemmtilega viðburð.

Aðrir viðburðir á næstunni hjá félaginu eru:

  • 14.03 Fyrirlestur frá Arion + Hugarflugsfundur í húsnæði KPMG
  • 03.05 Aðalfundur í húsnæði Deloitte
  • Sept vettvangsferð og út að borða (nánar síðar)
  • 23.11 Afmælisferð á Hótel Geysir

Félagið er með síðu á Facebook þar sem allir viðburðir eru auglýstir sem hefur heitið "FKE – Félag kvenna í endurskoðun" og hvetjum við allar konur sem ekki eru þar inni nú þegar að skrá sig.