FLE auglýsir til umsóknar styrki frá Námsstyrkja- og rannsóknarsjóði félagsins

Markmið námsstyrkja- og rannsóknarsjóðs FLE er að styrkja bóklega menntun endurskoðenda með því að veita ýmist styrki til einstaklinga sem stunda framhaldsnám í endurskoðun og reikningsskilum eða með því að styrkja stofnanir sem standa fyrir slíku námi. Markmið sjóðsins er einnig að veita styrki til eflingar rannsókna á sviði reikningshalds og endurskoðunar í þeim tilgangi að efla faglega umræðu um endurskoðun og reikningshald, viðhalda og auka faglega þekkingu endurskoðenda eða styrkja rannsóknir sem snerta beint hagsmuni FLE eða lögbundið hlutverk félagsins. Opnað hefur verið fyrir umsóknir um styrki.