FLE býður styrki á ný

Félag löggiltra endurskoðenda – FLE auglýsir til umsóknar styrki frá Námsstyrkja- og rannsóknarsjóði félagsins.

Umsóknarfrestur um náms- eða rannsóknarstyrk á árinu 2022 er til 1. júní n.k.  Skipulagsskrá sjóðsins, úthlutunarreglur og umsóknarslóð má nálgast hér. Eins er hægt að sjá hvaða styrkir hafa verið veittir frá 2010.

Markmið sjóðsins er að:

  • Styrkja bóklega menntun endurskoðenda með því að veita ýmist styrki til einstaklinga sem stunda framhaldsnám í endurskoðun og reikningsskilum eða styrkja stofnanir sem standa fyrir slíku námi.
  • Veita styrki til eflingar rannsókna á sviði reikningshalds og endurskoðunar í þeim tilgangi að efla faglega umræðu um efnið, viðhalda og auka faglega þekkingu endurskoðenda eða styrkja rannsóknir sem snerta beint hagsmuni FLE eða lögbundið hlutverk þess.