Kynning á skýrslu verðbréfaeftirlits Evrópu um niðurstöður eftirlitsaðila

Ársreikningaskrá Skattsins boðar til kynningarfundar fimmtudaginn 22. maí kl. 9:15 um niðurstöður eftirlitsaðila á evrópska efnahagssvæðinu með reikningsskilum útgefenda. Auk þess að farið verður yfir eftirlit á Íslandi.

Hvar: Hjá Skattinum, Katrínartúni 6 og í streymi á Teams.
Hvenær: 22. maí kl. 09:15. Húsið opnar kl. 9.

Skráning á viðburð

 

Halldór I. Pálsson, sérfræðingur hjá Ársreikningaskrá, fer yfir helstu niðurstöður skýrslunnar auk þess sem hann segir frá hvernig eftirliti er háttað hér á landi.

Fundurinn er til upplýsingar fyrir stjórnendur, endurskoðendur og aðra sem að gerð reikningsskila koma.

Viðburðurinn hefst kl. 9:15, húsið opnar kl. 9. Að viðburði loknum verður boðið upp á léttar veitingar og spjall.

 

Upptaka og glærur

Fundurinn verður tekinn upp. Upptaka og glærur fundarins verða birtar hér að honum loknum.