Löggildingarpróf
02.10.2025
Löggildingarprófin verða haldin í nú í október. Líkt og undanfarin ár eru prófin tvö, annars vegar próf í endurskoðun og reikningsskilum en hins vegar próf í skattalögum, félagarétti, kostnaðarbókhaldi og stjórnendareikningsskilum.
Samkvæmt upplýsingum frá prófnefnd eru 38 einstaklingar skráðir í próf. Af þeim eru 15 að fara í bæði prófin en 23 í annað hvort þeirra en sumir þeirra prófmanna sem taka annað prófið núna hafa þegar klárað hitt prófið. Við óskum prófmönnum góðs gengis og vonumst að sjálfsögðu eftir því að fá marga nýja löggilta endurskoðendur í félagið fyrir árslok.