Löggildingarprófin verða 10. og 12. okt

Prófnefnd löggiltra endurskoðenda hefur birt auglýsingu um próf til endurskoðunarstarfa.
Löggildingarpróf - endurskoðun
Prófdagar verða 10. og 12. október og prófin standa frá kl. 9-17 báða dagana. Próftökugjald er kr. 350.000.- 

Væntanlegir prófmenn skili umsóknum til Árna Tómassonar (arnitom@simnet.is) fyrir þriðjudaginn 9. ágúst. Tilkynningu skulu fylgja nafn prófmanns, kennitala, heimilisfang, tölvupóstfang og staðfesting um að fullnægt sé skilyrðum 4. og 6 tl. 1. mgr. 2. gr. laga nr. 79/2008.