Skil á ársreikningum og stjórnvaldssektir

Þann 29. apríl barst félaginu tölvupóstur frá ársreikningaskrá um skil á ársreikningum vegna reikningsársins sem lauk 31.12.2024 og álagningu stjórnvaldssekta vegna seinna skila og var pósturinn áframsendur á félagsmenn sama dag.

Í pósti ársreikningaskrár kemur fram að hún muni taka út lista yfir þau félög sem ekki hafa skilað ársreikningi fyrir miðnætti þriðjudaginn 30. september 2025 og að álagning sekta byggist á þeim lista. Álagning stjórnvaldssekta sbr. ákvæði 1. mgr. 120. gr. laga nr. 3/2006 um ársreikninga mun byggjast á framangreindum lista og miðast við miðnætti 30. september eins og áður hefur komið fram. Félög sem skila fyrir miðnætti munu því ekki verða sektuð. (fyrir utan félög sem beita alþjóðlegum reikningsskilastöðlum en sérreglur gilda um skil þeirra félaga).

Í 120. gr. laga um ársreikninga kemur fram að ársreikningaskrá skuli leggja stjórnvaldssektir á þau félög sem vanrækja að standa skil á ársreikningi eða samstæðureikningi til opinberrar birtingar innan þeirra fresta sem kveðið er á um í 109. gr. sömu laga. Þegar frestur skv. 109. gr. til skila á ársreikningi eða samstæðureikningi er liðinn skal ársreikningaskrá leggja á viðkomandi félag stjórnvaldssekt að fjárhæð 600.000 kr. og jafnframt krefjast úrbóta. Í fyrrnefndri 120. gr. laganna er fjallað um lækkun stjornvaldssekta. Þar segir að skili félag ársreikningi eða samstæðureikningi innan 30 daga frá tilkynningu um álagningu stjórnvaldssektar skuli ársreikningaskrá lækka sektarfjárhæðina um 90%. Ef úrbætur eru gerðar innan tveggja mánaða frá tilkynningu sektarfjárhæðar skal lækka sektarfjárhæðina um 60% en ef úrbætur eru gerðar innan þriggja mánaða frá tilkynningu sektarfjárhæðar skuli lækka sektarfjárhæðina um 40%.

Í bréfi ársreikningaskrár koma eftirfarandi tímasetningar fram varðandi lækkun á sektum:

Tímasetningar varðandi lækkanir stjórnvaldssekta sbr. ákvæði 2. mgr. 120. gr. verða eftirfarandi:

  1. 90% lækkun á stjórnvaldssekt: Félög sem hafa skilað inn ársreikningi til opinberrar birtingar fyrir miðnætti mánudaginn 3. nóvember 2025.
  2. 60% lækkun á stjórnvaldssekt: Félög sem hafa skilað inn ársreikningi til opinberrar birtingar fyrir miðnætti mánudaginn 1. desember 2025.
  3. 40% lækkun á stjórnvaldssekt: Félög sem hafa skilað inn ársreikningi til opinberrar birtingar fyrir miðnætti mánudaginn 5. janúar 2026.

 

Í tölvupósti ársreikningaskrár eru mörg fleiri mikilvæg atriði tíunduð varðandi skil ársreikninga, skilafresti, hvernig hægt er að ganga úr skugga um hvort ársreikningi hafi verið skilað og önnur mál sem vert er að kynna sér. Þá vill ársreikningaskrá að gefnu tilefni benda fagaðilum á að gæta þess vel að þær upplýsingar sem skráðar eru við innsendingu ársreiknings séu réttar.