Starfstími áritunarendurskoðanda hjá einingum tengdum almannahagsmunum
FLE barst á dögunum svar við fyrirspurn sem félagið sendi endurskoðendaráði þar sem óskað var eftir áliti ráðsins á því frá hvaða tímapunkti eigi að telja regluna um að skipta eigi um áritunarendurskoðanda á sjö ára fresti, sbr. reglugerð 537/2014 um sérstakar kröfur í tengslum við lögboðna endurskoðun á einingum tengdum almannahagsmunum, þegar svo háttar til að félag verður eining tengd almannahagsmunum í fyrsta sinn og kýs að hafa sama endurskoðanda og áður. Í 7. mgr. 17. gr. fyrrnefndar reglugerðar er kveðið á um að áritunarendurskoðandi skuli hætta þátttöku í endurskoðun á endurskoðuðu einingunni eigi síðar en sjö árum frá tilnefningu hans og að hann skuli ekki taka þátt í endurskoðun á einingunni fyrr en þrjú ár hafa liðið frá því að hann hætti þátttöku.
Fyrirspurnin sneri að því hvort í fyrrgreindu tilviki, þ.e. þegar félag verður eining tengd almannahagsmunum í fyrsta sinn og kýs að hafa sama endurskoðanda og áður, ætti að telja starfstíma áritunarendurskoðandans frá því hið endurskoðaða félag varð eining tengd almannahagsmunum eða frá því viðkomandi endurskoðandi tók fyrst við sem endurskoðandi félagsins.
Í svari endurskoðendaráðs kemur fram að ráðið telji að telja eigi starfstíma áritunarendurskoðanda frá því að hið endurskoðaða félag verður eining tengd almannahagsmunum og að aðkoma endurskoðanda að endurskoðun félags fyrir þann tíma telji ekki inn í árin sjö.
Nánari umfjöllun og rökstuðning er að finna í svarbréfi endurskoðendaráðs sem má nálgast hér að neðan.
