Tíu nýir löggiltir í farvatninu

Árni Tómasson prófstjóri löggildingarprófanna hefur sent Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu niðurstöður prófnefndar en þar kemur fram að tíu einstaklingar hafa staðist tilskilin verkleg próf. Tuttugu voru skráðir í prófið og er því óvanalega há hlutfallstala sem stenst það að þessu sinni. Það er einnig ánægjulegt að kynjaskiptingin er jöfn.