Ég hélt í einfeldni minni að arfur til náinna ættingja og skattlagning hans væri hafinn yfir pólitískt þras og umræður og mér finnst ótrúlegt að því sé haldið fram að álagning erfðafjárskatts á þá aðila sé „ skilvirk og réttlát leið til tekjuöflunar.“

Erfðafjárskattur

Leið til lækkunar
Reynir Vignir

Inngangur

Erfðafjárskattur hefur alltaf verið umdeildur enda að margra mati mjög óréttlátur skattur sem ætti ekki að vera til. Ég er  sammála þeim sem telja að draga eigi verulega úr skattlagningu á arf lögerfingja. Arfur á milli þeirra er oft vegna tilflutnings á eignum sem þeir nota/nýta saman og hafa gert um lengri eða skemmri tíma. Andlát ber líka oft óvænt að og aðstæður þá til greiðslu erfðafjárskatts geta verið óviðráðanlegar fyrir lögerfingja.

Haustið 2014 ritaði ég stutta grein í ViðskiptaMoggann um álagningarprósentu erfðafjárskatts og nokkur praktísk atriði tengd skattinum. Af viðbrögðum sem ég fékk í framhaldinu er ljóst, að mjög margir láta sig erfðafjárskatt varða og skömmu síðar var ma. vitnað til greinarinnar í forystugrein Mbl. sem fjallaði um skattamál. Frá þeim tíma hef ég fylgst af áhuga með umræðum um erfðafjárskatt.

Fyrirliggjandi frumvörp um breytingar, umsagnir og álit

Í haust hafa tvö frumvörp til breytinga á lögum um erfðafjárskatt verið til umræðu meðal þingmanna og koma væntanlega til kasta Alþingis á næstu vikum. Annað var kynnt í samráðsgátt stjórnvalda, en hitt lagt fram af nokkrum þingmönnum stjórnarandstöðunnar. Bæði eiga þau að leiða til lækkunar álagðs erfðafjárskatts samkvæmt greinargerðum.

Umsagnir um frumvörpin sem birst hafa í samráðsgáttinni og í fjölmiðlum á undanförnum vikum hafa verið mismunandi og sumar nokkuð athyglisverðar. Nokkrar varða tæknileg atriði og praktísk úrlausnarefni, en aðrar eru orðaðar þannig að um augljósa pólitík er að ræða og jafnvel tilraun til að gera suma sem eignir eiga tortryggilega. Þær umsagnir eru frá aðilum sem vilja frekar hækka skattinn en lækka.

Einn umsagnaraðili bendir td. á „að í mörgum tilvikum og nær öllum tilvikum þar sem eignir eru miklar, skipta mörgum hundruðum eða milljörðum króna, er eignin ekki byggð upp af skattlögðum tekjum heldur miklu fremur af tekjum sem komist hafa framhjá skattlagningu með ýmsum hætti.“

Í umsögn hagfræðings ASÍ kemur fram að samtökin „telja erfðafjárskatt skilvirka og réttláta leið til tekjuöflunar sem vinnur gegn ójöfnuði og óæskilegri samþjöppun auðs milli kynslóða“.

Lögmaður skrifaði nýlega í dagblað um erfðafjárskatt og hugsanlega lækkun hans: „erfðafjárskattur er með ógeðfelldari tekjuöflunarleiðum ríkissjóðs„ og sagði síðar í sömu grein: „það kemur ekki á óvart að hinir skattsjúku skuli leggjast gegn lækkuninni“.

Ég hélt í einfeldni minni að arfur til náinna ættingja og skattlagning hans væri hafinn yfir pólitískt þras og umræður og mér finnst ótrúlegt að því sé haldið fram að álagning erfðafjárskatts á þá aðila sé „ skilvirk og réttlát leið til tekjuöflunar.“

Fólk, á ýmsum aldri, sem ég hef rætt við í gegnum tíðina, vill gjarnan skilja eftir sig verðmæti fyrir sína nánustu eða greiða þeim arf fyrirfram og hafa jafnvel áhrif á, í hvað honum er ráðstafað. Þetta er gamall rammíslenskur hugsunarháttur. Og mér finnst áberandi að fólk, sem ekki telst til þeirra efnameiri í þjóðfélaginu, er stoltast af sinni eignastöðu, þegar þessi mál eru rædd og skipulögð og það leggur mikla áherslu á að arfur frá þeim nýtist vel.

Erfðafjárskattur vegur oft þungt þegar lægri arfsfjárhæðir koma til úthlutunar og til að bæta það upp þarf að breyta lögum um erfðafjárskatt með einföldum, en áhrifamiklum aðgerðum sem koma strax til framkvæmda.

Tillögur til breytinga á lögum um erfðafjárskatt.

Markmið aðgerðanna ætti að vera að fella niður erfðafjárskatt á stóran hluta minni dánabúa og einfalda álagninguna í  framkvæmd og í þeim tilgangi ætti að skoða;.

  1. Skattprósenta erfðafjárskatt á að vera ein.
  2. Af arfi sem fellur til lögerfingja skal ekki greiða erfðafjárskatt af fyrstu 100.000.000 kr. eitthundaðmilljónum - hreinnar eignar dánarbús, en greiða skal skatt af eignum umfram þá fjárhæð.
  3. Finna þarf sanngjarna leið varðandi meðhöndlun fyrirframgreidds arfs til lögerfingja með vísan til skattleysismarka. Hins vegar skal greiða skatt af fyrirframgreiddum arfi til allra annarra.
  4. Leggja skal erfðafjárskatt á arf til allra annarra en lögerfingja, án undantekninga og ívilnana.
  5. Einfalda á skilgreiningu stofns erfðafjárskatts.

Erfðafjárskýrsla skal gerð þó ekki komi til greiðslu skatts við uppgjör dánarbús. Það er nauðsynlegt svo ættartengsl séu skýr og tryggir að eignatilflutningur sé rekjanlegur. Alltaf skal gæta þess að hafa ákvæði um erfðafjárskatt einföld. Ekki þarf að hrófla við ákvæðum um álagningu á maka og sambúðarfólk.

Heimilt verði að innheimta lágmarkskostnað skv. gjaldskrá vegna skráningar og uppgjörs dánarbúa sem ekki greiða erfðafjárskatt.

Álagningarprósentu skv. 1.tl. skal reikna út og ákveða út frá fyrirliggjandi upplýsingum um fjárhæð greidds erfðafjárskatt, þannig að sanngjörn markmið stjórnvalda um fjárhæð innheimts erfðafjárskatts náist.

Tillögur þessar leiða til sanngjarnra breytinga á álagningu erfðafjárskatt og yrðu til mikilla hagsbóta fyrir fjölda einstaklinga og fjölskyldna

Reynir Vignir,

 

Morgunblaðið