Aldur, störf og nýliðun

Í þessari samantekt má finna ýmsar upplýsingar um aldursdreifingu, nýliðun og störf endurskoðenda í FLE.

Í samantektinni, sem byggir á félagatali FLE og ársskýrslum síðustu ára, kemur margt athyglisvert fram. Má sem dæmi nefna að rétt rúmlega helmingur félagsmanna á aldrinum 40 – 67 ára vinnur ekki á endurskoðunarstofu. Þá er um helmingur þeirra endurskoðenda félagsins sem verða enn á vinnualdri (67 ára eða yngri) í árslok 2026 fimmtugir eða eldri, þar af 18,0% á aldursbilinu 60-67 ára. Á sama tíma verða aðeins fjórir félagsmenn yngri en þrítugir í árslok 2026 en þess má geta að þegar  allir 414 félagsmenn FLE eru skoðaðir kemur í ljós að þeir voru að meðaltali 32 ára þegar þeir luku prófum og fengu löggildingu.

Í samantektinni er jafnframt að finna yfirlit um fjölda þeirra sem fengið hafa löggildingu síðustu ár en þegar síðustu tólf ár eru skoðuð eru það að meðaltali um tíu manns ár hvert.