Lagafrumvarp og umsagnir vegna fyrirhugaðra breytinga á lögum um ársreikninga
09.04.2026
Í febrúar voru drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um ársreikninga birt í samráðsgátt eins og lesa má um í þessari frétt. Breytingarnar varða stærðarmörk félaga, endurskoðunarmörk, skilafresti og fleira. Níu umsagnir bárust um frumvarpsdrögin, sjá nánar hér.
Eftir yfirferð umsagna og breytingar á frumvarpinu var það svo lagt fram á Alþingi. Um er að ræða stjórnarfrumvarp sem nálgast má hér. Hægt var að senda inn umsagnir um frumvarpið og lauk fresti til þess 8. apríl. Níu umsagnir bárust um lagafrumvarpið, þar á meðal umsögn frá álitsnefnd FLE. Hægt er að nálgast hverja og eina umsögn hér en allar umsagnirnar saman í einu skjali hér.
