Viðbrögð atvinnuvegaráðuneytisins við umsögnum um frumvarp til laga um breytingu á lögum um ársreikninga
Sem kunnugt er liggur nú fyrir Alþingi frumvarp um breytingar á lögum um ársreikninga nr. 3/2006 sem varðar stærðarhlutföll, endurskoðunarmörk, skilafresti og fleira, sbr. fyrri fréttir á heimasíðu. Fjölmargar umsagnir bárust bæði við frumvarpsdrögin sem birt voru í febrúar, sjá frétt hér, sem og við frumvarpið eftir að það hafði verið lagt fram á Alþingi, sjá hér. Álitsnefnd FLE sendi inn umsagnir í bæði skiptin.
Minnisblað með viðbrögðum atvinnuvegaráðuneytisins við innsendum umsögnum hefur nú verið birt. Minnisblaðið var skrifað að beiðni efnahags- og viðskiptanefndar sem óskaði eftir afstöðu ráðuneytisins til þeirra athugasemda í umsögnum um málið sem ráðuneytið teldi þörf á að bregðast við. Minnisblað atvinnuvegaráðuneytisins má finna hér.
Sem fyrr segir báurst margar umsagnir um bæði frumvarpsdrögin og frumvarpið sem hægt er að nálgast hér að neðan ásamt frumvarpinu.
