Einkafjárfestingarfélög og endurskoðun
Á undanförnum árum hefur víða í Evrópu færst í vöxt að einkafjárfestingarfélög (e. Private equity firms, PE-félög) fjárfesti í félögum sem veita þjónustu á sviði bókhalds, launavinnslu, reikningsskila og endurskoðunar. Á námskeiðinu mun Endrin Bitraj frá Accountancy Europe fjalla um þessa þróun og greina helstu ástæður þess að þessi félög sjá sífellt meiri tækifæri í fjárfestingum í endurskoðunar- og reikningsskilafyrirtækjum. Þar má meðal annars nefna áhrif tækniframfara, stafræna umbreytingu, aukna fjárfestingarþörf og vaxtartækifæri innan greinarinnar.
Endrin starfar hjá Evrópusamtökunum Accountancy Europe. Hann er meðal þeirra sem hafa komið að útgáfu tveggja samantekta sem samtökin hafa nýlega gefið út um fjárfestingar PE-félaga í reikningsskila- og endurskoðunarfyrirtækjum og áhrif þeirra á framtíð endurskoðunar. Endrin hefur auk þess reynslu af störfum við endurskoðun og fleiru.
Námskeiðið fer fram á ensku og verður haldið á Teams kl. 9:00 – 10:00 miðvikudaginn 4. mars. Það verður tekið upp og upptakan gerð aðgengileg fyrir þátttakendur eftir námskeiðið. Námskeiðið kostar 8.000 kr. fyrir félagsmenn og starfsmenn endurskoðunarstofa en 10.000 kr. fyrir aðra.
Námskeiðið gefur eina einingu í endurskoðun.
