Ör þróun í heimi upplýsingagjafar / staðfestingar á sjálfbærni í rekstri
Félag löggiltra endurskoðenda og Festa - miðstöð um samfélagsábyrgð og sjálfbærni, bjóða til samtals um sjálfbærni í rekstri, skýrslugjöf og mikilvægi staðfestinga á sjálfbærni upplýsingum hjá fyrirtækjum. Mikil og ör þróun er að eiga sér stað varðandi innleiðingu á og upplýsingagjöf um sjálfbærni í rekstri fyrirtækja á Íslandi og erlendis. Fyrirtæki á Íslandi þyrstir í skýrar línur um hvernig standa eigi að upplýsingagjöf og staðfestingu á sjálfbærni í rekstri.
Fundinum verður streymt í rauntíma 29. apríl, kl. 9-11 og skráning er opin til kl. 15 daginn áður. Gjaldfrjáls aðgangur í boði FLE. Fundurinn veitir 2 endurmenntunareiningar, eina í flokknum skatta og félagarétti og eina í flokknum reikningsskil og fjármál. SKRÁ MIG HÉR Fundarstjóri verður Hrund Gunnsteinsdóttir framkvæmdastjóri Festu. Hér er slóðin á streymið.
Dagskrá
Upplýsingagjöf fyrirtækja um sjálfbærni
Margrét Pétursdóttir, endurskoðandi hjá EY, fer yfir núverandi lagakröfur, valkosti um regluverk og vænta þróun á komandi misserum hvað varðar framsetningu og óháðar staðfestingar.
Reynsla markaðsaðila / (Reynslan af upplýsingagjöf og staðfestingum um sjálfbærni)
- Endurskoðun á kolefnisspori Landsbankans. Dr. Reynir Smári Atlason, sérfræðingur í sjálfbærni hjá Landsbankanum
- Sjálfbærni og sprotafyrirtæki. Marta Hermannsdóttir, Sérfræðingur í áhættustýringu og UFS, Eyrir Venture Management
Spurningar og svör Margrét, Reynir og Marta
Stefnumörkun og mælanleg markmið
Bjarni Herrera, í sjálfbærniteymi KPMG, fjallar um sjálfbærni út frá sjónarhóli stefnumörkunar og mælanlegra markmiða. Bjarni svarar spurningum í lokin.
Pallborð – Eru ófjárhagslegar upplýsingar „ófjárhagslegar“? – Gunnar Sveinn Magnússon, sjálfbærnileiðtogi EY, Sæmundur Sæmundsson, forstjóri Eflu, Harpa Theódórsdóttir, sérfræðingur í Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, Björgvin Ingi Ólafsson, ráðgjafi á sviði stefnumótunar og sjálfbærni hjá Deloitte.