Framsetning og skýringar í ársreikningum í samræmi við IFRS 18

Teams námskeið verður haldið fimmtudaginn 7. maí á milli kl. 9:00-10:30. Námskeiðið verður tekið upp og verður hægt að horfa á upptökuna í hálfan mánuð eftir að því lýkur, en til þess þarf að skrá sig.

SKRÁ MIG HÉR!

Á námskeiðinu mun Valgerður fara yfir framsetningu á reikningsskilum í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS) en breytingar eru í farvatninu sem munu hafa bein áhrif á framsetningu reikningsskila og þá helst rekstrarreikninginn og sjóðstreymi.

Farið verður yfir hvað breytingarnar fela í sér og hvers fyrirtæki mega vænta þegar IFRS 18 tekur gildi 1. janúar 2027. 

Valgerður Kristjánsdóttir er löggiltur endurskoðandi hjá PwC og hefur starfað þar frá ársbyrjun 2023 en starfaði þar á undan hjá EY í 20 ár. Valgerður varð löggiltur endurskoðandi árið 2009. Hún hefur kennt endurskoðunarferli I og II í Háskóla Íslands frá árinu 2022.

Námskeiðið gefur 1,5 endurmenntunareiningar í flokknum reikningsskil og fjármál.

Verðið er 12.000 kr. fyrir félagsmenn FLE og starfsmenn endurskoðunarstofa en 15.000 kr. fyrir aðra.