Yfirferð - löggildingarprófin

Hin árlega yfirferð löggildingarprófanna er áætluð 6. september.

FLE í samstarfi við prófnefnd um löggildingarpróf stendur fyrir námskeiði þar sem prófnefnd fer yfir niðurstöður síðustu löggildingarprófa sem haldin voru í október 2021. Námskeiðið verður haldið 6. september á Grand hóteli kl. 12:30-17:30. SKRÁ MIG HÉR. Athugið, námskeiðið verður ekki aðgengilegt rafrænt.

Fjallað verður um prófin samkvæmt reglugerð og úrlausn þess. Námskeiðið er fyrir alla en þó sérstaklega nema í endurskoðun einkum fyrir þá sem hyggjast þreyta prófin í haust. Endurskoðendur eru að sjálfsögðu líka velkomnir. Prófgerðarmenn fara yfir og skýra lausnir á löggildingarprófunum sem haldin voru 2021. Próf undanfarinna ára eru aðgengileg hér á vef FLE.

Með vísan til reglugerðar um endurmenntun endurskoðenda gefur námskeiðið 5 endurmenntunareiningar sem skiptast þannig: skatta- og félagaréttur 1 eining, endurskoðun 2,5 einingar, reikningsskil 1,5 einingar. Þátttökukostnaður er 30.000 fyrir félagsmenn en 40.000 fyrir aðra.

Leiðbeinendur: Unnar Friðrik Pálsson, endurskoðandi, Sigrún Guðmundsdóttir, endurskoðandi, Jóhanna Áskels Jónsdóttir, lögfræðingur, Páll Daði Ásgeirsson, endurskoðandi, Steingrímur Sigfússon, endurskoðandi, Herbert Baldursson, endurskoðandi