Með nýju útgáfunni er horft til framtíðar og var fókusinn settur á að bæta verulega notendaviðmót kerfisins.

Descartes endurskoðunarhugbúnaðurinn

Björn Óli Guðmundsson endurskoðandi hjá Enor

Descartes kerfið er þróað af og í eigu norsku endurskoðendasamtakanna, Norwegian Institute of Public Accountants. Kerfið hefur verið í notkun frá því á árinu 1998 og hefur verið notað af yfir 2700 endurskoðendum, mest í Noregi, Slóveníu og á Íslandi. Upphafleg markmið norsku endurskoðendasamtakanna voru að gefa öllum meðlimum sínum aðgang að upplýsingakerfi til að skrásetja endurskoðunarvinnuna ásamt aðferðafræði í samræmi við ISA staðlana.

Helstu áhrifaþættir við þróun kerfisins hafa verið áhættumiðuðu endurskoðunarstaðlarnir 2006, clarified ISAs 2010, önnur verkefni endurskoðenda (ISA 805, ISRE 2400 og ISRS 4410) 2011, og nýleg þróun í vef og skýjalausnum.

Heiti kerfisins er dregið af franska heimspekingnum og stærðfræðingnum René Descartes (1596-1650), sem var m.a. þekktur fyrir yfirlýsingar eins og:
• Fikraðu þig ávallt áfram á varfærin og kerfisbundin máta
• Ekki gera ráð fyrir að eitthvað sé satt fyrr en þú ert viss um það
• Greindu og leystu og vandamál eins vel og hægt er

Ný útgáfa, Descartes 4.0 kom út á árinu 2014 og var fyrst notuð hér á landi við endurskoðun vegna reikningsársins 2015. Þjónustu við eldri útgáfu kerfisins, Descartes 3 sem einnig hefur verið í notkun hér á landi var hætt 1. janúar 2017. Með nýju útgáfunni er horft til framtíðar og var fókusinn settur á að bæta verulega notendaviðmót kerfisins. Kerfið nýtir kosti skýjatækninnar og er aðgengilegt notendum í gegnum netvafra á nánast hvaða tæki sem er sem hefur internettenginu. Kerfið krefst engrar uppsetningar hjá notendum og eru allir notendur því að nota sömu útgáfu kerfisins. Öryggismál, geymsla gagna og afritun sem skiptir miklu máli í okkar umhverfi er á hendi rekstraraðila kerfisins og eru öll samskipti í gegnum kerfið dulkóðuð til að tryggja öryggi upplýsinganna.

Kerfið er í dag orðið mjög aðgengilegt og leiðir notandann vel í gegnum flæði endurskoðunarinnar en ISA staðlarnir eru aðgengilegir og samþættir kerfinu. Einn helsti kostur kerfisins er sveigjanleiki sem felst hvað helst í því hversu auðvelt er að aðlaga kerfið að mismunandi stærð og gerð verkefna.

Endurskoðendur hjá Enor hafa séð um námskeið og kennslu fyrir notendur kerfisins. Notendaþing hafa einnig verið haldin fyrir notendur Descartes þar sem kynntar hafa verið nýjungar og breytingar á kerfinu auk þess sem notendur hafa skipst á skoðunum og miðlað af reynslu sinni af notkun kerfisins. Nánari upplýsingar um kerfið eru aðgengilegar hér. 

FLE blaðið 2017