Að taka löggildingarpróf

FLE verður með námskeið um undirbúning og próftöku löggildingarprófa, miðvikudaginn 26. maí kl. 10-12. Námskeiðið verður í fundaraðstöðu félagsins, 5. hæð, Suðurlandsbraut 6. Farið verður yfir hagnýt atriði er varða undirbúning fyrir löggildingarpróf og svo hvernig best er að haga vinnubrögðum í prófunum sjálfum

Námskeiðið er frítt fyrir nema með aðild að FLE en kostar kr. 13.000 fyrir aðra. SKRÁ MIG HÉR.

Leiðbeinandi verður Elín Pálmadóttir endurskoðandi hjá PricewaterhouseCoopers ehf. Elín er löggiltur endurskoðandi frá 2019 og hefur því nýlega reynslu af próftöku.