Spjallstofur fyrir nema verða 27. sept, 2. og 4. október

Spjallstofur FLE fyrir nema í endurskoðun eru eingöngu ætlaðar nemum sem eru félagsmenn í FLE og eru þeim að kostnaðarlausu. Þær verða haldnar í húsnæði FLE, Suðurlandsbraut 6, 5. hæð kl.9:00 – 11:00 og þarf að tilkynna mætingu hér. Fulltrúar skattanefndar, reikningsskilanefndar og endurskoðunarnefndar FLE munu sitja fyrir svörum. Gefst nemum kostur á að spyrja um ákveðin atriði sem er að vefjast fyrir þeim.