Yfirferð síðasta löggildingaprófs (2017)

FLE í samstarfi við prófnefnd um löggildingarpróf munu standa fyrir námskeiði um prófið til löggildingar í endurskoðun. SKRÁ MIG HÉR. Fjallað verður um prófið samkvæmt reglugerð og úrlausn þess. Námskeiðið er fyrir alla nema í endurskoðun einkum fyrir þá sem hyggjast þreyta prófið í haust. Jafnframt eru endurskoðendur líka velkomnir. Prófgerðarmenn fara yfir og skýra lausnir á löggildingarprófinu sem haldið var 2017. Próf undanfarinna ára verða gerð aðgengileg á vef FLE. Hér getur þú nálgast ítarlegri námskeiðslýsingu.

Með vísan til reglugerðar um endurmenntun endurskoðenda gefur námskeiðið 5 endurmenntunareiningar sem skiptast þannig: skatta- og félagaréttur 1 eining, endurskoðun 2,5 einingar, reikningsskil 1,5 einingar. Þátttökukostnaður er 25.000 fyrir félagsmenn en 34.000 fyrir aðra.

Leiðbeinendur:

Unnar Friðrik Pálsson, endurskoðandi        
Sigrún Guðmundsdóttir, endurskoðandi
Símon Þór Jónsson, lögfræðingur
Hólmgrímur Bjarnason, endurskoðandi
Steingrímur Sigfússon, endurskoðandi
Herbert Baldursson, endurskoðandi

Prófeiningar frá prófinu 2017